Bullsvæði Ástu

Jahérnahér!!!!

08.02.2010 10:41:37 / astalauf

Morgunhlaup gefa gull í .....skaup?

Jújú, það er alltaf jafngaman að hlaupa.  Að vísu er ég farið að seinka morgunhlaupunum mínum heldur betur því þar sem við erum bara á einum bíl þessa dagana hefur verið svo sérlega þægilegt að hlaupa bara í vinnuna, æfa aðeins í Spönginni og skottast svo út í skóla.

Það sem er svo skemmtilegt við að hlaupa ekki fyrr en rúmlega 7, er að fólk er farið að vakna og þar sem ég held að forvitni sé hluti af mannlegu eðli, finnst mér afskaplega skemmtilegt að líta rétt sem snöggvast inn um gluggana hjá fólki, sjá hvernig heimilishaldið er á bæjunum þar sem ljóstíra er komin.  Þegar ég hleyp fram hjá einu húsinu velti ég t.d. oft fyrir mér hvort húsfrúin sé sest að tölvunni (held hún vinni heima), á öðrum stað hef ég velt fyrir mér frá því eftir þrettándann, hvað fær fólk til að vilja hafa jólatréð skreytt og með öllum ljósum á þegar nálgast miðjan febrúar, á enn einum stað er alltaf ein buxnalaus frú að laga kaffi og á öðrum stað karlmaður ber að ofan að gefa ungabarninu sínu morgunmat.  Maður fyllist nánast áhyggjum þegar fólk er ekki búið að kveikja og er við það að banka upp á og athuga hvort þau séu nokkuð að sofa yfir sig, en það væri kannski heldur langt gengið.

Eitt veldur mér þó töluverðum áhyggjum og það er að á einum stað í Grafarvogi virðist sama hvenær og hvernig ég hleyp, það slokknar alltaf á einum ljósastaurnum þegar ég hleyp framhjá, og ég er farin að halda að ofþyngd mín hafi eitthvað með þetta að gera því þegar ég hef hlaupið framhjá kviknar alltaf aftur á staurnum!

Annars erum við bara í stuði, Jill átti að koma í heimsókn í morgun en í gærmorgun hringdi síminn rúmlega 7, þá var það hún, mætt á Leifsstöð og hafði minn heittelskaði aðeins ruglast á dagsetningum.  Hann sagði þó að þetta væri algjörlega mér að kenna þar sem ég væri stjórnandi heimilisins og að eins og góður stjórnandi fyrirtækis sem hefur haft sama starfsmanninn í 18 ár og veit að hann er heldur brokkgengur, að ekki sé gott að treysta alveg á hans orð og kannski er það bara rétt;)

En nú er fyrsti hópurinn minn að klára tímaritgerð og best að fara að lesa þær yfir:)

Kv.
Ásta gluggagægir
Sóla skrifaði
Skammastínástalaufeyskammaskammskamm! Þú ert nú meiri gluggagægirinn! Sendir mér meira að segja sms í hvert sinn sem ég klóra mér í rassinum! Þú átt að vera í vinnu hjá CIA, ekki kennslu. Eða jú...þú ert ágæt í kennslunni. Já já, þú ert ágæt yfirleitt. Steini líka, ha ha ha:-D
Inga skrifaði
þú og já þið eruð dásemd

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  21  Alls: 262170
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox

Klukkan
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.